Monday, May 24, 2010

Jæja ég fór aldrei í ferðina á föstudagin. Ætlaði að slappa af en var kölluð í vinnu.

En ég fór á Sólheimajökul í gær. Það var bara æði. Það voru teknar myndir sem ég fæ svo vonandi sendar svo ég geti sett þær hér inn. Við vorum á mannboddum með axir og svo fengum við að prufa ískleifur það var æði og mikið erfiðara en það sýnist vera á myndum.



í gær var ég að vinna og ætlaði að vera roalega dugelg í dag en lagðist bara í leti í góða veðrinu. Þannig að ég er bara á fullu núna og ætla að vera að taka allt hér í gegn í nótt. Ég var loksins að setja þvottávélina mína inn í vaskahús og taka láns vélina út og náði að skella henni ofan á litlutá djöfull var það vont. á von á því að verða vel bolgin í fyrramálið.



Göngu klúbburinn er að fara af stað fyrir sumarið og ég stefni á að ná öllum göngunum þegar ég er ekki að vinna.



Svo er líka stefnan að taka heilsuna í gegn mataræðið og líkaman ..Ætla að fara aftur upp á jökul og vera þá í aðeins betra formi.



Nú er ástin mín að koma heim á morgun kl 15:00 og verður heima í viku..jess

No comments:

Post a Comment